Pólskur gestakennari við Háskólann á Hólum

Anna Pawlikowska-Piechotka frá Jozef Piłsudski University of Physical Education í Varsjá, var gestakennari við Ferðamáladeild á dögunum. Hún flutti þrjá fyrirlestra um menningararf og ferðamennsku, pílagrímaferðir og trúartengda ferðaþjónustu og um notkun friðaðra mannvirkja í ferðaþjónustu.

Auk þess kynnti hún skólann sinn, en skólarnir tveir hafa með sér samning um nemenda- og starfsmannaskipti. Anna ræddi einnig við rektor og starfsfólk ferðamáladeildar um mögulegt rannsóknasamstarf á sviði ferðamála í dreifbýli.

Fleiri fréttir