Prófanir á spenni í aðveitustöð í nótt
Vegna rafmangsbilunarinnar í Skagafirði í gær þarf að gera prófanir á spenninum í aðveitustöðinni á Sauðárkróki. Því verður keyrt varaafl í nótt frá klukkan 00:30 til 06:00 og undir lok keyrslu þarf að taka rafmagn af í stutta stund á meðan kerfið er tengt aftur saman. Ekki er hægt að útiloka aðrar truflanir á tímabilinu, segir í tilkynningu frá Rarik.
„Við óskum því eftir að fólk spari rafmagn eftir bestu getu, t.d. með því að slökkva alveg á raftækjum svo sem tölvum og sjónvörpum. Beðist er velvirðingar á því ónæði sem þetta hefur og kann að valda,“ segir ennfremur í tilkynningunni.