Ráðið hefur verið í stöður við Minjastofnun á Sauðárkróki
Minjastofnun Íslands auglýsti tvær stöður lausar í starfstöð sinni á Sauðárkróki á dögunum, annars vegar starf arkiteksts og hins vegar fornleifafræðings. Þá var staða fornleifafræðings við Minjastofnun í Reykjavík jafnframt auglýst laus til umsóknar. Á vef Minjastofnunar Íslands segir að gengið hefur verið frá ráðningum í stöðurnar þrjár.
Umsóknarfrestur rann út 1. febrúar og bárust 13 umsóknir í heildina, tvær í stöður arkitekts á Sauðárkróki og samtals 11 í stöður fornleifafræðinganna. Lista yfir umsækjendur má finna hér.
Eftirfarandi aðilar ráðnir:
Magnús Freyr Gíslason í stöðu arkitekts á Sauðárkróki
Guðmundur Stefán Sigurðarson í stöðu fornleifafræðings á Sauðárkróki
Þá var Ásta Hermannsdóttir ráðin í stöðu fornleifafræðings í Reykjavík.