Ráðstefna um seltuþol og smoltun laxfiska

Háskólinn á Hólum og Háskólinn í Gautaborg stóðu fyrir ráðstefnu um seltuþol og smoltun laxfiska sem haldin var í Reykjavík og á Hólum í Hjaltadal dagana 13-17. ágúst.

Hópur sérfræðinga á sviði á sviði smoltunar hittist fjórða hvert ár til þess að fjalla um smoltun, seltuþol og annað efni sem tengist smoltun. Vísindamennirnir koma frá Norðurlöndunum, Bretlandi, Írlandi, Kanada, Bandaríkjunum og Japan sem leiða rannsóknir á þessu sviði. Ráðstefnan nú í ágúst var sú níunada í röðinni.

Hér á landi hefur um langt árabil verið unnið að hliðstæðum rannsóknum, einkum á bleikju en einnig á laxi. AVS sjóðurinn hefur stutt þessar rannsóknir. Á ráðstefnunni gafst íslenskum vísindamönnum gott tækifæri til þess að kynnast nýjustu rannsóknum á þessu sviði jafnframt því að kynna eigin rannsóknir og fá viðbrögð helstu sérfræðinga heims.

Eldi, veiðar og framleiðsla á afurðum laxfiska er geysilega mikilvægur atvinnugrein víða um heim. Smoltun laxfiska tengist ekki einungis matfiskeldi, heldur einnig hvernig tekst til með seiðasleppingar í vötn og ár, og getur þá verið um að ræða sleppingar fyrir atvinnu- eða frístundaveiðar, hafbeit, uppbyggingu fiskistofna í útrýmingarhættu, og/eða viðhaldi stofna í ám þar sem stíflur hindra fiskigengd á hrygningarstöðvar.

Sumar tegundir eða afbrigði laxfiska, t.d. Atlantshafslax, urriði (sjóbirtingur) eða sjóbleikja ganga úr fersku vatni í sjó. Áður en fiskarnir geta gengið í sjó þurfa þeir að ganga í gegnum flókið líffræðilegt ferli sem nefnt er smoltun og gerir þeim kleift að ganga tímabundið úr fersku vatni í sjó. Eftir smoltun geta fiskarnir aðlagast seltu jafnframt því sem sundþol fiskanna eykst og atferli breytist. Fyrir villta stofna og sérstaklega fyrir eldisfiska þessarra tegunda skiptir sköpum að smoltunarferlið gangi eðlilega fyrir sig, en mestu afföll í laxfiskastofnum eru talin eiga sér stað á fyrstu dögum sjógöngu.

 

Fleiri fréttir