Rafmagnslaust í Skagafirði aðfararnótt föstudagsins

Vegna vinnu í aðveitustöð Varmahlíð verður rafmagnslaust í Skagafirði aðfararnótt föstudagsins 7. júní frá miðnætti til kl 04:00.  Varaafl verður keyrt á Sauðárkrók en ekki er hægt að útiloka rafmagnstruflanir eða mögulega langvarandi rafmagnsleysi. 

Í tilkynningu frá RARIK eru notendur beðnir um að spara rafmagn eftir megni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir