Rangar dagsetningar á inflúensubólusetningu

Sú meinlega villa er í auglýsingu frá Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki sem birtust í Sjónhorni og Feyki í dag að dagsetningar eru rangar. Rétt er að bólusett verður kl. 13:30 – 15:00 mánudaginn  30. sept., þriðjud. 1. okt. og þriðjud.  8. okt. á Sauðárkróki. Dagsetning vegna bólusetningar í Hofsós gildir.

Sóttvarnarlæknir mælist til þess að eftirtaldir hópar láti bólusetja sig:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrasjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
  • Þungaðar konur.

Ofangreindir hópar fá bóluefnið sér að kostnaðarlausu en þurfa að greiða komugjald.

Bólusett verður kl. 13:30 – 15:00 mánudaginn  30. sept., þriðjud. 1. okt. og þriðjud.  8. okt. á Sauðárkróki og þriðjudaginn 8. október klukkan 15:30 á Hofsósi.

Fleiri fréttir