Rangt farið með tunnufjölda í Bændablaðinu hvað Skagafjörð varðar
Í Bændablaðinu sem kom út í síðustu viku voru rangar staðhæfingar um sorpflokkun í Sveitarfélaginu Skagafirði. Í umfjöllun blaðsins sagði að Sveitarfélagið Skagafjörður væri stærst þeirra sveitarfélaga sem eingöngu byðu upp á einnar tunnu kerfi. Var sú fullyrðing byggð á gögnum sem Samband íslenskra sveitarfélaga lét blaðinu í té, eftir því sem kemur fram í leiðréttingu fréttarinnar á vefsíðu Bændablaðsins.
„Nú hefur blaðið fengið upplýsingar frá Sambandinu um að það sé ekki rétt því sveitarfélagið bjóði upp á þriggja tunnu kerfi í þéttbýli en einnar tunnu kerfið eigi aðeins við í dreifbýli. Leiðréttist þetta hér með og eru lesendur, sem og Skagfirðingar beðnir afsökunar á þessu,“ segir á bbl.is.“