Rannsóknir Orkusölunnar í Fljótum - Fyrirhuga allt að 2 MW virkjun í Tungudal
Fyrir skömmu greindi Morgunblaðið frá því að Orkusalan, dótturfélag RARIK, vinni að rannsóknum vegna áforma um Tungudalsvirkjun í Fljótum en Orkustofnun gaf út rannsóknarleyfi fyrir um ári síðan. Greinin vakti töluverða athygli heimamanna og nokkrar umræður sköpuðust á Facebook-síðunni Við erum ættuð úr Fljótunum.
Óhætt er að segja að hugur þeirra sem þar skrifa stendur ekki með virkjunaráformum í Tungudal og væntanlega má gera ráð fyrir því að mótmælum verði hreyft af Fljótamönum enda telja þeir um óafturkræfar framkvæmdir verði að ræða.
Í umsóknargögnum Orkusölunnar til Orkustofnunar kemur fram að samkvæmt þeim athugunum sem þegar hafa farið fram virðist mega virkja 270-280 m fallhæð frá Tungudalsvatni að Stífluvatni. Gera mætti ráð fyrir miðlunarstíflu við útfall Tungudalsvatns og niðurgrafinni þrýstipípu að stöðvarhúsi nærri bæjarstæði Tungu. Tenging virkjunarinnar yrði með jarðstreng að Skeiðsfossvirkjun. Helstu rannsóknir sem eru fyrirhugaðar eru landmælingar, jarðfræðiathuganir, rennslismælingar og umhverfisathuganir, s.s. gróðurfar, lífríki Tungudalsár og Tungudalsvatns, fuglar, smádýr og fornleifar. Samhliða mun fara fram verkfræðiathugun á stíflu- og inntaksmannvirkjun, aðrennslispípu, stöðvarhúsi, aðkomuvegum, raf- og vélbúnaði og tengingu virkjunar. Að loknum rannsóknum á að liggja fyrir mat á hagkvæmni virkjunar sem er grundvöllur fyrir ákvörðun um næstu skref.
„Við erum þessi misserin að vinna að rennslismælingum og mun niðurstaða þeirra gefa okkur vísbendingar um framhaldið. Lítið sem ekkert rask verður við þær rannsóknir,“ segir Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri Orkusölunnar. Aðspurður telur hann Tungudal henta vel frá náttúrunnar hendi í slíka framkvæmd en mat á áhrifum á náttúru Tungudals og næsta nágrennis liggur ekki fyrir á þessu stigi.
Óvíst er um stærð virkjunarinnar en lausleg áætlun gerir ráð fyrir 1-2 MW og orkan ætluð fyrir almennan markað Orkusölunnar. Til samanburðar segir Magnús Rjúkandavirkjun í Ólafsvík vera af sambærilegri stærð en inntakslón hennar sé þó minna.
Magnús segist ekki kannast við ugg hjá Fljótamönnum gagnvart verkefninu enda ekki fengið neinar athugasemdir frá þeim. „Orkusalan hefur ekki fengið erindi frá íbúum en við stefnum á að halda fund í Fljótunum á næstunni til kynningar á verkefninu.“
Hjá Sveitarfélaginu Skagafirði er lítið að frétta um fyrirhugaða virkjun enda ekkert erindi borist þangað enn. „Það hefur ekkert erindi komið inn á borð sveitarstjórnar og engar viðræður né nokkuð annað um leyfi til að fara í virkjunarframkvæmdir,“ segir Gísli Sigurðsson, varaformaður byggðarráðs.
Áður birst í 5. tbl. Feykis 2019