Rausnarlegar gjafir frá Minningarsjóði Sigurlaugar Gunnarsdóttur frá Ási

Örn Ragnarsson, formaður Minningarsjóðsins, Engilráð M. Sigurðardóttir fyrrverandi gjaldkeri, Elín H. Sæmundardóttir ritari, Ásta Ólöf Jónsdóttir gjaldkeri, Björg Baldursdóttir, formaður Sambands Skagfirskra kvenna og Herdís Klausen yfirhjúkrunarfræðingur. Myndina tók Helga Rósa Guðjónsdóttir.
Örn Ragnarsson, formaður Minningarsjóðsins, Engilráð M. Sigurðardóttir fyrrverandi gjaldkeri, Elín H. Sæmundardóttir ritari, Ásta Ólöf Jónsdóttir gjaldkeri, Björg Baldursdóttir, formaður Sambands Skagfirskra kvenna og Herdís Klausen yfirhjúkrunarfræðingur. Myndina tók Helga Rósa Guðjónsdóttir.

Mánudaginn 26. ágúst sl. var formleg móttaka á höfðinglegum gjöfum sem HSN Sauðárkróki hefur fengið frá Minningarsjóði Sigurlaugar Gunnarsdóttur frá Ási á tímabilinu janúar til ágúst 2019. Heildarverð  gjafanna er 10.717.099,00 m.vsk. Í stjórn Minningarsjóðsins eru þau Örn Ragnarsson formaður, Ásta Ólöf Jónsdóttir gjaldkeri og Elín H. Sæmundardóttir ritari. Auk þeirra mættu Engilráð M. Sigurðardóttir fyrrverandi gjaldkeri og Björg Baldursdóttir, formaður Sambands Skagfirskra kvenna (SSK). Herdís Klausen yfirhjúkrunarfræðingur veitti gjöfunum viðtöku fyrir hönd HSN.

Í tilkynningu frá HSN kemur fram að Minningarsjóður frú Sigurlaugar Gunnarsdóttur frá Ási hafi verið stofnaður 7. júlí 1969 en þá voru liðin 100 ár frá stofnun fyrsta kvenfélagsins í Skagafirði. Sjóðurinn er því 50 ára í ár.

Í staðfestri skipulagsskrá sjóðsins frá 30. júlí 1970 segir í 3. grein að tilgangur sjóðsins sé að styrkja Héraðssjúkrahúsið á Sauðárkróki og ellideild þess eða elliheimili, til kaupa á lækningatækjum eða öðru því sem stjórn sjóðsins telur mesta nauðsyn á á hverjum tíma. Óheimilt er að nota féð til rekstrar þessara stofnana.

Í 5. grein segir  meðal annars að sjóðurinn veiti viðtöku minningargjöfum og öðrum gjöfum.

Blóma og gjafabúðin á Sauðárkróki er með minningarkort sjóðsins til sölu og einnig er hægt að kaupa minningarkort í afgreiðslu HSN á Sauðárkóki á virkum dögum.

Í janúar gaf sjóðurinn hjúkrunardeildum HSN Sauðárkróki tvær Sara Steady skutlur, heildarverð gjafar 446.400 krónur og í febrúar gaf sjóðurinn sjúkra- og hjúkrunardeildum þrjár súrefnissíur af gerðinni Resp Everflo. Heildarverð þeirrar gjafar var kr. 462.024.

Í mars gaf sjóðurinn heilsugæslusviði skáp fyrir hjúkrunar- og læknavörur að verðmæti kr. 376.568 og sjúkradeild stafræna stólvog að verðmæti 242.178 krónur.

Í apríl gaf sjóðurinn tvö hjúkrunarrúm með fylgihlutum á hjúkrunardeild að verðmæti kr. 809.000 og Keisi blóðtökuvagn með fylgihlutum á rannsóknarstofu upp á 434.294 krónur.

Í júní gaf sjóðurinn sjúklingamónitor með fylgihlutum á sjúkradeild sem telur kostnað upp á kr. 3.742.753 og loks bættust við tvær telemetríur ásamt fylgihlutum nú í ágúst. Heildarverð 4.198.882 krónur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir