Rausnarlegir Lionsmenn á Króknum
Gjafmildin var allsráðandi hjá félögum í Lionsklúbbi Sauðárkróks á fundi þeirra í gærkvöldi þegar afhentir voru þrír rausnarlegir styrkir til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, björgunarsveitanna í Skagafirði og Sóknarnefndar Sauðárkróks sem reyndist vera lokahnykkurinn í fjármögnun líkbíls fyrir kirkjusóknir héraðsins.
Fram kom á fundinum að Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki hafi lengi notið góðs af gjafmildi Lionsklúbbsins, sem lítur svo á að stofnunin sé eitt af þeim verkefnum sem standi þeim næst. Í gær var stofnuninni afhent að gjöf CADD Solis v4.1 lyfjadælu ásamt fylgihlutum að verðmæti kr. 405.073,-
Björgunarsveitirnar í Skagafirði hafa fyrir löngu sýnt og sannað mikilvægi sitt í samfélaginu og fyrir það þökkuðu klúbbsmenn í gær með fjórum Tetra stöðvum ásamt fylgihlutum að verðmæti kr. 1.448.184.
Mynd að ofan: Þórarinn Þórðarson, fv. gjaldkeri klúbbsins og Þorsteinn Guðmundsson, fulltrúi björgunarsveitanna. Neðri mynd: Atli Hjartarson, formaður Lionsklúbbs Sauðarkróks, og Björn Björnsson, fulltrúi sóknarnefndar Sauðárkrókskirkju. Myndir: PF.
Með einnar milljón króna peningagjöf til Sóknarnefndar Sauðárkróks var vendipunktur markaður vegna kaupa á nýjum líkbíl sem nefndin hefur stefnt á frá árinu 2019. Bíllinn er væntanlegur til landsins seinni partinn í maí og vonir standa til að bíllinn verði kominn í notkun um miðjan ágúst eftir að innréttingar sem nauðsynlegar eru fyrir líkbíl verða frá.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.