Reiðhallarsýningu Þyts frestað

Reiðhallarsýning Þyts sem vera átti þann 23.mars verður frestað til mánudagsins 1.apríl. Á heimasíðu hestamannafélagsins kemur fram að sýningin verður samstarfsverkefni æskulýðsstarfs Þyts og annarra félagsmanna og er von á vönduðum atriðum meðal félagsmanna á öllum aldri.  

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í sýningunni eru hvattir til að hafa samband við Guðnýju í s.893-7981 /netfang: bessast@simnet.is eða Vigdísi í s. 895-1146 /netfang: isolfur@laekjamot.is.

Fleiri fréttir