Reiðhjólaslys á Sauðárkróki

Reiðhjólaslys varð í brekkunni við Fjölbrautaskólann rétt í þessu er unglingur á reiðhjóli hjólaði á bifreið sem var að beygja inn á planið hjá Íþróttahúsinu. Unglingurinn var að hjóla niður brekkuna og náði ekki að stoppa í tæka tíð og hafnaði því á bílnum. Bíllinn er töluvert skemmdur. Hjálmur drengsins brotnaði illa við fallið og hefur trúlega bjargað því að ekki fór verr.

Drengurinn var með meðvitund þegar farið var með hann á sjúkrahús. Feykir hefur ekki nánari fréttir af líðan drengsins.  „Hjálmurinn er ónýtur en hefur klárlega bjargað drengnum,“ segir vaktstjóri lögreglunnar á Sauðárkróki.

Fleiri fréttir