Reiðnámskeiði fyrir grunnskólanemendur lokið
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
18.03.2014
kl. 09.21
Á dögunum var haldið árlegt reiðnámskeið fyrir grunnskólanema á Hólum. Er námskeiðið skipulagt sem fyrsta æfingakennslan í reiðkennaranámi við hestafræðideild Háskólans á Hólum. Þátttakendur eru grunnskólanemar úr Varmahlíðarskóla og Árskóla á Sauðárkróki. Er samstarfið milli skólanna þriggja orðinn fastur liður í starfi þeirra allra, og þykir það gott dæmi um vel heppnað samstarf milli skólastiga.
Umsjónarkennari yfir öllu saman er Elisabeth Jansen, og er meðfylgjandi mynd, sem fengin var á vef Hólaskóla, frá henni.