Reikningar sendir út með tölvupósti

Sveitarfélagið Skagafjörður getur nú sent út reikninga með tölvupósti til allra sem það kjósa og vill auka við þann fjölda sem velur þann afhendingarmáta á greiðsluseðlum.

Á vef sveitarfélagsins kemur fram að greiðsluseðlarnir munu birtast áfram í heimabönkum eins og verið hefur. Það kemur fyrir að fólk flytji á milli staða og gleymi að upplýsa um nýtt heimilisfang. Það kostar umstang og margföld póstburðargjöld að koma reikningum þá til skila.  Fólki er gjarnara að halda í netföngin sín og þá er einfalt að koma reikningum á réttan stað strax.

Sveitarfélagið mælist til þess að notendur þjónustu sveitarfélagsins sendi sveitarfélaginu netföng sín, svo innheimtan verði skilvirkari.  Vinsamlegast sendið tölvupóst á innheimta@skagafjordur.is þar sem fram kemur nafn, kennitala og að óskað sé eftir að fá reikninga framvegis í tölvupósti.

Fleiri fréttir