Rekstur svf. Skagafjarðar þyngist umtalsvert í nýrri fjárhagsáætlun
Endurskoðuð fjárhagsáætlun svf. Skagafjarðar var kynnt á fundi sveitarstjórnar í gær og leiða þær breytingar sem gerðar voru til hækkunar rekstrarliða A-hluta fjárhagsáætlunar um 93.350.000 kr. og B-hluta um 10.600.000 kr., samtals 103.950.000 kr. Tap samstæðunnar í heild verður því 162.950.000 kr. í stað 59.000.000 kr. í fyrri áætlun.
Fjárfestingarliðir hækka um 44.305.000 kr. Fjárfesting ársins verður þá kr. 157.505.000 kr. nettó í A og B hluta. Lánsfjárþörf hækkar um 85 milljónir króna frá fyrri áætlun og verður samtals 246.000.000 kr.
Á fundinum tók Jón Magnússon Sjálfstæðisflokki til máls og lagði fram bókun þar sem hann lýsir áhyggjum sínum með áframhaldandi skuldasöfnun sveitarfélagsins. Telur hann m.t.t. rauntalna yfir rekstur sveitarfélagsins fyrstu átta mánuði ársins, sýna rekstrarhalla er nemur 159 milljónum króna, og við blasi að hallarekstur ársins verður jafnvel enn meiri en gert er ráð fyrir í þessari endurskoðuðu áætlun. Þá sagði Jón að Sjálfstæðismenn lýsi enn á ný yfir þungum áhyggjum af getuleysi meirihlutans við að ná tökum á fjármálum sveitarfélagsins.
Sigurjón Þórðarson fulltrúi Frjálslyndra og óháðra tók einnig til máls og lagði fram bókun þar sem hann segist álíta það sérkennileg vinnubrögð að endurskoðuð sé áætlun fyrir árið 2011, nú í lok október þegar einungis rúmir tveir mánuðir eru eftir af árinu. „Það að gera áætlun um hið liðna er ekki til mikils gagns“, sagði hann og telur ekki er heimild til fyrir slíkum vinnubrögðum í nýjum Sveitarstjórnarlögum sem taka gildi næstu áramót.“Miklu nær væri að einbeita sér að aðgerðum sem geta orðið til þess að endar nái saman í rekstri sveitarfélagsins.“
Í bókun Stefáns Vagns Stefánssonar Framsóknarflokki kemur fram að hagnaður af rekstri samstæðunnar fyrir afskriftir og fjármagnsliði séu 339 millj. króna. Afskriftir upp á 179 millj.króna og fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur séu alls 323 millj. króna, sem hækka á milli ára um 153 millj. króna og skýri þann taprekstur sem endurskoðuð áætlun sýnir. „Verðbólga og veik staða íslensku krónunnar hafa þessi áhrif, en ef verðbólguspá Seðlabanka Íslands hefði staðist, væri niðurstaða endurskoðaðrar fjárhagsáætlunar 6,6 millj. kr hagstæðari en upphafleg fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.“
Forseti bar upp fjárhagsáætlunina sem samþykkt var með fjórum atkvæðum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Frjálslyndra sátu hjá.