Réttað í Staðarrétt í dag

Réttað verður í Staðarrétt í Skagafirði um klukkan fjögur í dag, en bændur í fyrrum Skarðs- og Seyluhreppum í Skagafirði héldu í göngur snemma í morgun. Að sögn Bjarna Bragasonar á Halldórsstöðum gekk ágætlega að manna göngur þrátt fyrir lítinn fyrirvara.

Sjálfur lagði Bjarni upp með hesta á kerru um sjöleytið í morgun og lá leiðin á Vatnsskarð og Bólstaðarhlíð. "Svo smölum við hérna til baka og nýtum bílana og tæknina eins og hægt er," sagði hann um leið og lagt var í hann .

Réttarstörf í Staðarrétt hefjast um fjögurleytið og má ætla að smalamennska hafi gengið þokkalega í dag, alla vega er veður nokkuð hagstætt. Eflaust eru allar hendur vel þegnar til að aðstoða við réttarstörfin.

Fleiri fréttir