Réttarball á Ketilási og réttir í Fljótum

Hið árlega réttarball í Ketilási í Fljótum fer fram laugardaginn 14. sept. þar sem hinir mögnuðu Hvanndalsbræður munu spila.  Réttarböll Fljótamanna eru löngu orðin landsfræg og frábærri skemmtun heitið, segir í tilkynningu frá skemmtanahöldurum. Réttað verður í fjórum réttum í Fljótum næstu daga. Á morgun 12. september verður réttað í Hraunarétt, 13. september í Stíflurétt, 14. september í Holtsrétt og í Flókadalsrétt þann 15. september.

Fleiri fréttir