Réttarupphitun á Vatnsleysu
Réttarupphitun verður á Vatnsleysu í Skagafirði föstudaginn 27. september, en réttað verður í Laufskálarétt á laugardeginum. Björn og Arndís munu bjóða uppá kaffi og kleinur í hesthúsinu frá kl. 15:00 en frá 16:00 – 18:00 verða stóðhestar, söluhross og unghross kynnt.
Sýndur verður fjöldi spennandi hrossa til sölu af hinu þekkta Vatnsleysukyni, svo sem Lydíu-sonurinn Lótus sem er 1. verðlauna stóðhestur og Hekla undan 1. Verðlauna hryssunni Hrund og því sammæðra stóðhestinum Hraunari sem sló í gegn í vor. Þá verða folöld til sölu undan 1. verðlauna stóðhestinum Lord en í sumar voru margar af þekktustu hryssum landsins hjá honum.
Það hefur oft myndast skemmtileg stemming á Vatnsleysu í kringum Laufskálaréttirnar og verður árið í ár engin undantekning. Að lokinni sölusýningu verður hitað upp fyrir reiðhallarsýninguna með söng og gleði.
Stofnuð hefur verið Facebook síða um viðburðinn og þeir sem skrá mætingu þar verða með í happdrætti þar sem dregnir verða út folatollar undir stóðhesta búsins, nýju Hrímnismélin, og fleira. Nánari upplýsingar um söluhrossin og dagskránna eru á Facebook síðu og www.vatnsleysa.com.