Rökkurkórinn í Miðgarði

Rökkurkórinn heldur tónleika í Miðgarði, þriðjudaginn 27. desember, kl. 20:30. Kórinn verður með fjölbreytta söngskrá og félagarnir í Hundur í óskilum ætla einnig að stíga á svið og skemmta tónleikagestum.

Stjórnandi kórsins er Sveinn Sigurbjörnsson, Thomas Higgerson sér um undirleik og Vilborg Jónína Hjálmarsdóttir syngur einsöng.

Þess má geta að Rökkurkórinn var stofnaður árið 1978 af söngglöðu fólki í Skagafirði. Kórinn hefur verið mjög öflugur frá upphafi og hefur haldið tónleika víðsvegar um landið og tekið þátt í fjölmörgum skemmtunum bæði einn og sér og með öðrum kórum.

Á tónleikunum verður upp á kaffiveitingar og miðaverð er 2500 kr. Tónleikarnir eru styrktir af Menningarráði.

 

Fleiri fréttir