Rólegt um jól og áramót
feykir.is
Skagafjörður
06.01.2014
kl. 19.01
Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki var afar rólegt um jól og áramót og virðist gleðskapur í tilefni hátíðanna því hafa farið friðsamlega fram. Sömuleiðis hefur sloppið vel til með óhöpp vegna veðurs og færðar þrátt fyrir leiðindatíð undanfarna daga.
Þverárfjall hefur að vísu verið lokað nokkrum sinnum á fáeinum dögum en umferð verið beint um Vatnsskarð í staðinn. Til að mynda þurftu báðir ferðir strætó í gær að fara um Vatnsskarð vegna lokunar á Þverárfjalli.