Rúður sprungu út og plötur fuku af þaki í Hjarðarhaga

Eins og sjá má af meðfylgjandi myndum fylltust fjárhúsin í Hjarðarhaga í Blönduhlíð af snjó. Myndir: Jósef Gunnar Magnússon.
Eins og sjá má af meðfylgjandi myndum fylltust fjárhúsin í Hjarðarhaga í Blönduhlíð af snjó. Myndir: Jósef Gunnar Magnússon.

Feykir óskaði eftir myndum fá lesendum í kjölfar óveðursins sem geisaði á mánudaginn var. Þegar hafa nokkrar myndir verið birtar í samantekt um óveðrið, en myndirnar sem fylgja þessari frétt tók Jósef Gunnar Magnússon.

Hjá þeim Grétari Geirssyni og Sigrúnu Lóu Jósefsdóttur, sem eru ábúendur á hluta jarðarinnar Hjarðarhaga í Blönduhlíð, urðu umtalsverðar skemmdir á fjárhúsum. Rúður sprungu út og plötur fuku af þaki og eins og myndirnar bera með sér fylltist allt af snjó. Í fyrri frétt má sjá myndir Þorgerðar Evu Þórhallsdóttur, þar sem björgunarsveitarmenn vinna að viðgerðum í Hjarðarhaga.

Við hjá feykir.is tökum ennþá á móti myndum tengdum óveðrinu, á netfangið feykir@feykir.is.

 

 

Fleiri fréttir