Sæluvika 2014 sett

Sæluvika Skagfirðinga 2014 var sett ný fyrir skömmu á sviði sýningarinnar Lífsins gæði og gleði.Það var Ásta Pálmadóttir sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem setti Sæluvikuna í ár.

Hóf hún mál sitt á erindi úr Maístjörnunni eftir Halldórs Laxness og rakti svo sögu Sæluvikunnar sem upphaflega var partur af sýslufundum Skagfirðinga, en Sæluvikan á sér allt að 120 ára langa sögu.

Við þetta tilefni söng Karlakórinn Heimir nokkur lög. Sýningin stendur til kl 16 í dag í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki en síðan tekur við þéttskipuð dagskrá Sæluviku, sem nánar má lesa um hér.

 

Fleiri fréttir