Sæluvika 26. apríl til 3. maí
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
16.03.2015
kl. 17.22
Lista- og menningarhátíð Skagfirðinga verður að þessu sinni haldin dagana 26. apríl til 3.maí 2015. Sæluvika Skagfirðinga er ein elsta menningarhátíð landsins en í Sæluviku er jafnan boðið upp á fjölbreytta menningardagskrá víðs vegar um Skagafjörðinn.
Þeim sem hafa hug á að setja upp viðburð í Sæluviku og auglýsa í dagskrárriti Sæluvikunnar er bent á að hafa samband við Sigfús Inga Sigfússon, sigfus@skagafjordur.is eða í síma 455 6000 fyrir 18. mars 2015.