Sæti í undanúrslitum tryggt eftir baráttusigur gegni Fjölni

Tindastóll og Fjölnir áttust við í 8 liða úrslitum Lýsingarbikars KKÍ í Dalhúsi þeirra Grafarvogsmanna í gærkvöldi. Leikurinn var hnífjafn og æsispennandi en varnarleikurinn var í fyrirrúmi hjá báðum liðum. En með seiglunni hófst þetta hjá Stólunum sem voru sterkari á lokamínútunum og sigruðu 71-76.

Spennustigið var augljóslega nálægt þolmörkum í upphafi leiks og gekk liðunum illa að koma boltanum í körfuna. Heimamenn byrjuðu þó betur og voru yfir 10-4 þegar fyrsti leikhluti var rúmlega hálfnaður. Helgi Margeirs og Proctor settu niður tvo þrista á skömmum tíma en Stólarnir náðu loks að jafna leikinn með körfu frá Flake, 18-18, áður en leikhlutinn var úti. Sama baráttan var uppi á teningnum í öðrum leikhluta en heimamenn yfirleitt skrefinu á undan Stólunum í stigaskorinu. Flake fékk tvær villur, þar af aðra óíþróttamannslega þegar rúmar þrjár mínútur voru til leikhlés en svaraði því með að troða í næstu sókn með tilþrifum. Stuttu síðar kom Helgi Rafn Stólunum yfir og Ingvi Rafn sá til þess að Tindastóll hafði eins stigs forystu í leikhléi, 35-36.

Enn harðnaði slagurinn í þriðja leikhluta og allt á suðupunkti. Nú voru það Stólarnir sem voru skrefi á undan og mestur varð munurinn sex stig, 49-55, eftir að Proctor skrúfaði niður einn þrist þegar tvær og hálf mínúta voru til loka þriðja leikhluta. Heimamenn komu sterkir til baka og náðu að komast yfir, 58-57, rétt fyrir lok fjórðungsins. Liðunum gekk illa að finna körfuna í upphafi fjórða leikhluta og fyrsta stig Stólanna gerði Proctor af vítalínunni þegar tæpar fjórar mínútur voru liðnar. Mikill pirringur var í mönnum og lá við slagsmálum en gestunum fannst heimamenn komast upp með ýmislegt í vörninni. Nú var komið að því að Helgi Rafn spýtti duglega í lófana og drægi Tindastólsrútuna í fjögurra liða úrslit en kappinn var gríðarlega öflugur síðustu fimm mínútur leiksins. Hann gerði átta stig í röð og sá til þess að Stólarnir gæfu ekki þumlung eftir. Darrel Flake setti niður eitt víti þegar tvær mínútur voru til leiksloka og kom Stólunum í 68-69 og nú náðu gestirnir að sína mátt sinn og megin, skot Fjölnismanna rötuðu ekki í körfuna og smá saman jókst munurinn, mest af vítalínunni, og á endanum náðist sigurinn og miðinn í 4ra liða úrslit bikarsins.

Sóknarleikur beggja liða var ekki góður enda varnarleikurinn númer eitt. Stólarnir tóku 20 3ja stiga skot en það var aðeins Helgi Margeirs sem eitthvað hitti að ráði en hann setti niður 4 af 8. Proctor var stigahæstur Stólanna með 21 stig en nýtingin var ekki til eftirbreytni. Hann hirti 10 fráköst og stal fjórum boltum. Flake setti niður 19 stig, Helgi Rafn 16 og Helgi Margeirs 14 en þessir fjórir leikmenn báru hitann og þungan af stigaskori Stólanna en bekkurinn skilaði litlu að þessu sinni. Hjá heimamönnum stóðu Daron Sims, Ólafur Torfa og Páll Helga upp úr.

Stóra málið var að landa sigri og tryggja sæti í undanúrslitum og það hafðist. Grindvíkingar sigruðu Njarðvík í gær en í kvöld eigast við Þór Þ og Haukar og ÍR og Keflavík B. Nú er bara að vonast til að heilladísirnar verði með Tindastóli þegar dregið verður og við fáum heimaleik í Síkið. Áfram Tindastóll!

Tölfræði leiks á heimasíðu KKÍ >

Fleiri fréttir