Sameiginlegt lið Norðlendinga
48. bikarkeppni FRÍ í frjálsíþróttum fór fram í Reykjavík um síðustu helgi. Norðlendingar sendu sameiginlegt lið, skipað íþróttafólki úr UMSS, UFA, UMSE og HSÞ. Liðið hafnaði í þriðja sæti með 150 stig, en ÍR sigraði með 174,5 stig og í öðru sæti varð FH með 166 stig.
Sama röð var einnig á þremur efstu liðum bæði í karla- og kvennaflokki.
Árangur Skagfirðinganna varð sem hér segir:
Björn Margeirsson varð í 2. sæti í 1500 m og 3. sæti í 800 m hlaupum.
Guðjón Ingimundarson varð í 3. sæti í 400 m grind. og 4. sæti í 110 m grindahlaupi.
Þorgerður Bettína Friðriksdóttir varð í 4. sæti í 400 m grind. og 800 m hlaupi. Þá var hún einnig í sveit Norðlendinga í 1000m boðhlaupi kvenna sem varð í 2. sæti.
Karlasveit Norðlendinga sigraði í 4x100 m boðhlaupi og varð í 2. sæti í 1000 m boðhlaupi, en í báðum sveitunum voru þrír Skagfirðingar, Daníel Þórarinsson, Guðjón Ingimundarson og Jóhann Björn Sigurbjörnsson.