Sameining og niðurskurður til umræðu

Áform um sameiningu heilbrigðisstofnana innan heilbrigðisumdæma og boðaður niðurskurður í fjárlögum til stofnana og verkefna í Skagafirði eru á dagskrá 306. Fundar í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem haldinn verður í Safnahúsi við Faxatorg kl 11:00 í dag.

Feykir hefur undanfarið fjallað um niðurskurðinn og viðbrögð sveitarfélagsins við þeim. Síðast í gær birtist hér á vefnum frétt þar sem hollvinir Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki fanga hugmyndum um yfirtöku sveitarfélagsins á rekstri stofnunarinnar.

Fleiri fréttir