„Samfélagsleg áhrif ferðaþjónustu, þrjú tilvik úr dreifbýli“ á Hólum á morgun
Næsti fyrirlestur í fyrirlestraröðinni „Vísindi og grautur“ verður haldinn heima á Hólum í stofu 202, miðvikudaginn 10. febrúar nk. Guðrún Helgadóttir prófessor heldur erindi sem hún kallar: „Samfélagsleg áhrif ferðaþjónustu, þrjú tilvik úr dreifbýli“.
Sem fyrr eru allir velkomnir á fyrirlestrana og aðgangur er ókeypis.