Samningur um rekstur í endurskoðun

Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur samþykkt að fela sveitarstjóra, fræðslu- og félagsmálastjóra og formanni fræðsluráðs að leita eftir því við eigendur Reykjatanga ehf. að ráðist verði í heildarendurskoðun á samningi félagsins og Húnaþings vestra um rekstur Skólabúða að Reykjum í Hrútafirði. Þetta kom fram á fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra þann 6. september sl.

Það var Fræðsluráð Húnaþings vestra sem lagði endurskoðunina til við sveitarstjórn en í fundargerð Fræðsluráðs frá 5. sept. segir:

„Fræðsluráð óskar eftir að fá skýrt hlutverk, með hvaða hætti það hafi faglegt eftirlit og umsjón með starfsemi skólabúðanna og einnig hvaða upplýsingar þeim ber að fá frá rekstraraðila skólabúðanna. Einnig telur fræðsluráð gott að skoða samninginn í heild sinni t.d. að taka tillit til nýrrar aðalnámsskrár grunnskóla.“

Fleiri fréttir