Samningur um uppbyggingu reiðavega í Skagafirði
Drög að samningi á milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og nýstofnaðs sameinaðs hestamannafélags í Skagafirði um uppbyggingu reiðvega í sveitarfélaginu var lagður fyrir Umhverfis- og samgöngunefnd í lok nóvember. Um er að ræða samning sem fyrir árin 2016 til 2020.
Að sögn Indriða Þ. Einarssonar mun hið nýja hestamannafélag, sem tekur til starfa í byrjun næsta árs, í samvinnu við veitu- og framkvæmdasvið, ákveða í hvaða reiðvegi í sveitarfélaginu fjármununum verður varið, í samræmi við aðalskipulag sveitarfélagsins.
Nefndin samþykkti samninginn og í fundargerð segir að tilvonandi uppbyggingu reiðvega um sveitarfélagið sé fagnað.