Samningur um verkefnisstjóra á Unglistahátíðinni Eld í Húnaþingi

Gerður hefur verið samningur til fjögurra ára við Unglistahátíðin Eld í Húnaþingi um fjármögnun á verkefnisstjóra. Það eru Húnaþing vestra, KVH, SKVH og LÍ á Hvammstanga sem eru fjármögnunaraðilar, samkvæmt Leó Erni Þorleifssyni oddvita sveitarstjórnar Húnaþings vestra.

Hátíðin hefur verið haldin ár hvert síðan árið 2003 en öll vinna við undirbúning hátíðarinnar er unnin í sjálfboðavinnu af íbúum í héraðinu, segir á heimasíðu hátíðarinnar. Fjölmargir viðburðir hafa skipað sér fastan sess á hátíðinni en ár hvert fá nýjar hugmyndir einnig að líta dagsins ljós.

 

Fleiri fréttir