Samþykkt að SFS sameinist Kili
Á aðalfundi Starfsmannafélags Skagafjarðar sem haldinn var á mánudag var samþykkt að sameinast Kili - stéttarfélagi starfsmanna í almannaþjónustu. Viðræður hafa staðið yfir um nokkurn tíma milli stjórna félaganna og undirrituðu þær samkomulag 23. janúar síðastliðinn þar sem sameiningin var ákveðin, eins og sagt var frá á Feyki.is.
Með sameiningunni verða félagsmenn Kjalar um 1000 manns og félagið eitt af fimm stærstu félögunum innan BSRB. Félagssvæði Kjalar nær yfir Norðurland og Vesturland en félagið var stofnað árið 2004 við sameiningu nokkurra félaga á svæðinu. Formaður er Arna Jakobína Björnsdóttir sem hefur aðsetur á skrifstofu félagsins á Akureyri, ásamt Margréti Árnadóttur fulltrúa.
Starfsmannafélag Skagafjarðar var stofnað árið 1971 og félagsmenn þess voru ríkisstarfsmenn í Skagafirði og starfsmenn hjá Sveitarfélaginu Skagafirði, um 160 manns. Fráfarandi formaður félagsins er Árni Egilsson sem tekur sæti í stjórn Kjalar fram að næsta aðalfundi.