Sandkistur um allan Skagafjörð

Í vikunni var komið fyrir sandkistum á þéttbýlisstöðum í Skagafirði. Í kistunum er saltblandaður sandur og er fólki frjálst að ná sér í sand í kisturnar til að sanda í kringum hús sín.

Kisturnar eru staðsettar á eftirfarandi stöðum;

  • Steinsstaðir: við norðurvegg gamla bókasafnsins.
  • Varmahlíð: við norðurvegg íþróttahússins.
  • Sauðárkrókur: við suðurhlið þjónustumiðstöðvar / Eignasjóðs á Borgarflöt.
  • Hólar: við aðalinngang grunnskólans.
  • Hofsós: við austurhlið áhaldahússins við Norðurbraut.

 

Fleiri fréttir