Sandra Dögg og Brother Grass með þvottabalatrylling
Sandra Dögg Þorsteinsdóttir og hljómsveit hennar, Brother Grass halda af stað út á land með nesti í körfu, þvottabalann á þakinu og blússandi hamingju í farteskinu. Þau munu koma við víða á norður og austurlandi í júlí og verður söng og spilagleði í fyrirrúmi.
Sveitin ætlar að hrista upp í Skagfirðingum með ekta hillbilly stemmningu á Kaffi Krók laugardagskvöldið 23. júlí kl. 22:30. Það er því ærin ástæða til að gleðjast saman, fylla magann af byggi og stappa taktinn...svei mér þá!
Á boðstólnum verða þeirra eigin og annarra manna tónlist sem er einskonar bræðingur af Bluegrass, Blues, Folk, Old Time Mountain Hillbilly Music, Jug Band og Gospel.
Þvottabrettaspil, nefflautusóló, þvottabalatryllingur, harmonikkuleikur og svo miklu meira!
Aðgangseyrir eru 1000 kr. en enginn posi verður á staðnum, enda passar það ekki við svona hillbilly stemmningu.