Sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að náttúruauðlindum
Gæsaveiðitímabilið hefst þann 20. ágúst og hefur sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkt reglur sem veiðimenn skulu hlíta í eignarlöndum sveitarfélagsins. Á dögunum sendi stjórn Skotvís frá sér ályktun þar sem reglurnar eru gagnrýndar. Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri, segir að þess sé vænst að veiðimenn virði fyrirkomulagið og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að náttúruauðlindum.
Guðný segir að reglurnar séu samræmdar við reglur um rjúpnaveiði. Nokkuð hefur verið rætt um það að bannað sé að vera með hunda við veiðarnar á Skotveiðispjallinu á FB og segir Guðný það vera til að hemja aðgang meðan búpeningur er ennþá á heiðum sbr. 7. gr. fjallskilasamþykktar Húnaþings vestra. Þar segir m.a. að eigi megi ónáða fé í afréttinum að þarflausu og ekki taka þaðan búfé nema með leyfi fjallskilastjórnar.
Hún segir það hafa gerst að búpeningur fælist við hunda og dróna og að hross hafi sturlast og hlaupi þá á hvað sem fyrir verður s.s. girðingar, og geti stórslasast. Hún segir það einnig hafa komið fyrir að skotið hafi verið á kálfa, alifugla og annað og gæti eins gerst með kindur. Litið sé á þetta sem dýravelferðarmál.
Guðný segir að reglurnar verði auglýstar á næstu dögum og þá verði kort sem sýnir eignarlöndin sem reglurnar ná yfir látið fylgja með.
Fyrirkomulag gæsaveiða í eignarlöndum Húnaþings vestra verður með eftirfarandi hætti haustið 2017:
1. Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af Veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til gæsaveiða í eignarlöndum sveitarfélagsins. Um verður að ræða leyfi á þrjú svæði.
Svæðin eru:
1. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði austan Víðidalsár ásamt jörðinni Öxnatungu.
2. Víðidalstunguheiði vestan Víðidalsár ásamt jörðunum Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og Króki.
3. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru.
2. Hvert veiðileyfi gildir þann dag sem tilgreindur er á viðkomandi leyfi og er útgefið innan þess gæsaveiðitíma sem umhverfisráðuneytið hefur gefið út vegna ársins 2017. Leyfið veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma.
3. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000,- á dag.
4. Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði er takmarkaður við 4 byssur á hverju svæði á dag og tekið skal fram að leyfishafar hafa einir heimild til veiða á umræddum svæðum. Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.
5. Með vísan til 7. greinar Fjallskilasamþykktar Húnaþings vestra er óheimilt að nýta hunda og flygildi (dróna) til veiða fyrr en fyrstu göngum á viðkomandi afrétti er lokið.
6. Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Þannig veitir veiðileyfið ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði.
Tengd frétt: Veiðileyfi á Víðidalstunguheiði gagnrýnd