Seiglusigur á Snæfelli í Hólminum og annað sætið gulltryggt
Tindastólsmenn gerðu sér lítið fyrir í kvöld og tryggðu sér annað sætið í Dominos-deildinni með baráttusigri á liði Snæfells í Hólminum. Aldeilis glæsilegur árangur hjá strákunum því enn á eftir að spila tvær umferðir í deildinni.
Stólarnir fóru betur af stað og komust í 8-15 þegar sex mínútur voru liðnar af leiknum. Síðan tóku þeir sér smá pásu og skoruðu ekkert í rúmar sjö mínútur. Á meðan gerðu heimamenn 12 stig en Helgi Margeirs kom Tindastólsrútunni aftur í gang með þristi og staðan 20-18. Flake jafnaði metin 28-28 en lið Snæfells hafði yfirhöndina fram að hléi og leiddi, 36-33, þegar þriðji leikhluti hófst.
Hólmarar voru að berjast fyrir sæti í úrslitakeppninni og voru sprækir framan af síðari hálfleik. Tveir þristar í röð komu þeim í góða stöðu, 57-44 en þá tók Helgi Viggós sig til og skutlaði niður bolta af bannsvæði. Næstu fimm stig gerði síðan Sigurður Páll og munurinn orðinn fimm stig. Lewis og Dempsey gerðu næstu stig Tindastóls og staðan 59-58 fyrir Snæfell þegar fjórði leikhluti hófst og við tók mikil barátta og hnífjafn leikur.
Heimamenn voru yfir 71-68 þegar tæpar fimm mínútur voru til leiksloka. Lewis kom Stólunum yfir, 73-76, en Snæfellingar gáfust ekki upp og komust aftur yfir, 77-76, þegar ein og half mínúta var eftir. Dempsey kom Stólunum yfir og Lewis og Ingvi bættu við sitt hvoru vítaskotinu það sem eftir lifði leiks án þess að heimamenn næðu að svara fyrir sig. Lokatölur 77-80.
Jafnræði var með liðunum í kvöld en nýting heimamanna í 3ja stiga skotum var góð (8/17). Lið Snæfells var hins vegar með 21 tapaðan bolta á móti 11 hjá Stólunum og munar um minna. Dempsey var stigahæstur Tindastólsmanna með 20 stig en Lewis var með 19 stig, 6 fráköst, 5 stolna bolta og fiskaði 8 villur. Þá átti Helgi Viggós fínan leik með 13 stig og 7 fráköst.
Næsti leikur Tindastóls er heima í Síkinu á sunnudaginn en þá mæta bullheitir Haukar sem eru að berjast fyrir þriðja sætinu í deildinni.
Stig Tindastóls: Dempsey 20, Lewis 19, Helgi Viggós 13, Helgi Margeirs 8, Flake 6, Sigurður 5, Svavar 4, Ingvi 3 og Pétur 2.