Selfoss sótti þrjú stig norður í gær
Meistaraflokkur Tindastóls kvenna í knattspyrnu tók á móti liði Selfoss í gærkvöldi á Sauðárkróksvelli í norðangjólunni. Um einstefnu var að ræða á mark heimastúlkna sem sköpuðu sér fá marktækifæri.
Tindastólsstúlkur léku undan vindi í fyrri hálfleik en þrátt fyrir að þær börðust vel í vörninni náðu gestirnir að setja boltann í netið á 9. mínútu þegar Anna María Friðgeirsdóttir skoraði. Sú staða hélst fram að hálfleik en á upphafs mínútum þeim seinni fengu heimastúlkur á sig annað mark. Varnarbarátta Tindastóls hélt áfram í síðari hálfleik en marktækifæri væri nánast hægt að telja á einum putta. Á 76. mínútu skoraði Katrín Ýr Friðgeirsdóttir svo sitt annað mark og þriðja mark gestanna sem fögnuðu verðskulduðum sigri. Að öðrum leikmönnum ólöstuðum má segja að Tóta markmaður hafi bjargað því að ekki fór verr þar sem hún var sem fyrr örugg og varði geysilega vel í Tindastólsmarkinu.
Bjarki Már þjálfari Tindastóls var ekki sáttur við leik liðsins en segir að það hafi tapað á móti góðu liði.
Ertu sáttur við leik liðsins?
-Nei ég var ekki sáttur við leik liðsins, sérstaklega í fyrri hálfleik, þar sem við bárum allt of mikla virðingu fyrir toppliðinu. En í síðari hálfleik lögðu stúlkurnar sig fram og fóru að berjast en liðið átti ekki góðan dag, sem gengur ekki upp á móti liði eins og Selfoss.
Ertu sáttur við stöðu liðsins í mótinu?
-Já og nei, liðinu hefur vantað stöðugleika en mikil meiðsli í hópnum hefur óneitanlega haft áhrif á það.
Það eru tveir leikir í næstu viku, hverjar telur þú líkurnar vera á sigri í þeim leikjum?
-Já það eru leikir gegn Völsungi (mánudaginn 4. júlí) og Fjölni (föstudaginn 8. júlí) á heimavelli. Við getum unnið öll liðin í þessum riðli ef við spilum eins og við getum. Við komum klárlega til með að selja okkur dýrt í þessa leiki, segir Bjarki og vill hvetja fólk til að mæta á völlinn og halda áfram að styðja við bakið á stúlkunum. Áfram Tindastóll.
Tindastóll situr nú í fimmta sæti af sjö með 4 stig sæti neðar en Völsungur sem hefur 9 stig. Sjá stöðu á Fótbolti.net.