Senda þurfti pakkann suður til aftollunar

Íslandspóstur á Sauðárkróki. Mynd: KSE
Íslandspóstur á Sauðárkróki. Mynd: KSE

Anna Jóhannesdóttir á Hjaltastöðum í Skagafirði segist orðlaus yfir þjónustu Íslandspóst og „ferköntun þessa bákns,“ eins og hún orðar það. Hún segir farir pakka sem að misfórst í sendingu erlendis frá ekki sléttar. Sendingin innihélt tvo pakka og skilaði annar þeirra sér fljótt og vel. En þegar hinn pakkinn sér loks á Sauðárkrók, eftir að búið var að greiða tolla og gjöld af báðum pökkunum þegar sá fyrr barst, þurfti að senda hann suður til aftollunar og ekki víst að hann skili sér fyrr en eftir næstu viku.

„Nú er þolinmæðisbikar minn barmafullur hvað varðar þjónustu Íslandspósts,“ sagði Anna í samtali við Feyki. „Þannig er mál með vexti að fyrir rúmum mánuði var verslað fyrir mig erlendis, vara staðgreidd og sett í póst þarlendis. Þetta voru tveir pakkar og annar skilaði sér fljótt og vel ásamt heildarreikningi, sem ég greiddi af bæði toll og flutningsgjöld. Ég gerði samdægurs athugasemd vegna þess að helmingur sendingarinnar skilaði sér ekki og var mér sagt að ég skyldi engar áhyggjur hafa af þessari tollgreiðslu, þetta færi sjálfkrafa í gegn þegar hinn pakkinn skilaði sér,“ útskýrir Anna.
„Á mánudagsmorgun fór ég á pósthúsið á Sauðarkróki þar sem týndi pakkinn beið mín, en þar beið mín einnig krafa uppá fulla tollgreiðslu sem ég að sjálfsögðu neitaði að greiða,“ segir Anna og bætir við að úr þessu máli sé ekki hægt að greiða nema senda pakkann aftur til Reykjavíkur til að aftolla hann, þrátt fyrir að tollskýrslur séu til inni í kerfinu.
„Ég er nánast orðlaus á ferköntun þessa bákns. Ég hélt í einfeldni minni að á þessari tækniöld sem við lifum á væri svo einfalt að leiðrétta svona mistök. Ég spurði í svolítilli kaldhæðni hvort ég gæti kannski átt von á að pakkinn bærist mér í næstu viku en starfsmaðurinn taldi sig ekki getað lofað því,“ segir Anna að lokum.

Fleiri fréttir