Setning Sæluviku verður í atvinnulífssýningu

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur gefið út að Sæluvikan, Lista- og menningarhátíð Skagfirðinga, verður að þessu sinni haldin dagana 29. apríl til 6. maí. Setning Sæluvikunnar mun fara fram á atvinnulífssýningunni Skagafjörður – Lífsins gæði og gleði, í íþróttahúsinu á Sauðárkróki 29. apríl.

Þeir sem hafa áhuga á að setja upp viðburð í Sæluvikunni er bent á að hafa samband við Áskel Heiðar Ásgeirsson sviðsstjóra Markaðs- og þróunarsviðs í netfangið heidar@skagafjordur.is eða í síma 455 6000, fyrir 1. apríl nk.

Fleiri fréttir