Sex kepptu um sæti í KS-deildinni
Úrtökumót fyrir KS-Deildina fór fram í gærkvöldi í Svaðastaðahöllinni. Fjögur sæti voru laus fyrir kvöldið en einungis voru sex knapar skráðir til leiks, nokkuð færri en menn áttu von á. Keppt var í fjórgangi og fimmgangi og réði meðaltal einkunna úrslitum.
Athygli vakti að tveir af dómurunum voru komnir um langan veg, það voru Hafnfirðingarnir Sigurður Ævarsson og Sævar Leifsson og munu þeir dæma deildina í vetur ásamt Pétri Vopna, Eyþóri Einars, Hinrik Má og Sveini Inga.
Úrslit voru eftirfarandi;
1. Sölvi Sigurðarson - 6,48
2. Hörður Óli Sæmundsson - 6,32
3. Arnar Bjarki Sigurðarson - 6,00
4. Hlín Christiane - 5,58
5. Sveinn Brynjar - 5,17
Lilja Pálmadóttir gerði ógilt í fjórgangi eftir annars stórgóða sýningu á hesti sínum Móa frá Hjaltastöðum.
Dregið var í liðakeppninni um þriðja knapa liðanna og standa þau svona;
Top Reiter - Syðra Skörðugil:
Elvar E. Einarsson - Tryggvi Björnsson - Baldvin Ari Guðlaugsson
Weierholz:
Bjarni Jónasson - Sigvaldi Guðmundsson - Jóhann Magnússon
laekjamot.is:
Ísólfur Líndal Þórisson - Vigdís Gunnarsdóttir - Sölvi Sigurðarson
Hrímnir:
Þórarinn Eymundsson - Líney María Hjálmarsdóttir - Hörður Óli Sæmundsson
Draupnir - Þúfur:
Mette Mannseth - Gísli Gíslason - Arnar Bjarki Sigurðarson
Björg - Fákasport:
Viðar Bragason - Þorbjörn H. Matthíasson - Hlín Christiane
Fyrsta keppnin verður haldin 26. febrúar þegar keppt verður í fjórgangi.