Sex vilja skólastjórastöðu Varmahlíðarskóla
Sex sóttu um stöðu skólastjóra Varmahlíðarskóla þegar hún var auglýst í annað skiptið en allir fyrri umsækjendur þóttu ekki uppfylla kröfur Capacents sem var sveitarfélaginu innan handar með ráðninguna. Að sögn Sigríðar A. Jóhannsdóttur mannauðsstjóra Svf. Skagafjarðar er verið að ræða við umsækjendur og niðurstaða kunn innan skamms.
Þessir sóttu um:
Þórdís Friðbjörnsdóttir Varmahlíð
Álfheiður Freyja Friðbjarnardóttir Reykjavík
Jóhanna Thorsteinsson Þórshöfn
Linda Björk Halldórsdóttir Hafnarfjörður
Þorvaldur Gröndal Sauðárkrókur
Kristján Arnar Ingason Reykjavík.