Síðasta flug til Sauðárkróks í kvöld
Á heimasíðu Flugfélagsins Ernis kemur fram að flug til Sauðárkróks leggist af frá og með sunnudeginum 1. janúar 2012 og samkvæmt því verður síðasta áætlunarflugferðin farin í kvöld. Samkvæmt heimildum Feykis hefur öllu starfsfólki á Alexandersflugvelli sem telur fimm manns verið sagt upp störfum og hættir það nú um áramótin nema einn sem vinnur út janúar.
Ásta Pálmadóttir sveitarstjóri Svf. Skagafjarðar sagðist ekki vera búna að gefa upp alla von að áfram verði flogið á Krókinn því enn eigi eftir að fá frekari upplýsingar frá stjórnvöldum varðandi opinberan stuðning.
Ekki náðist í Bjarna Jónsson forseta sveitarstjórnar við vinnslu fréttarinnar en hann hefur verið í hvað mestum samskiptum við stjórnvöld um áframhaldandi flug á Sauðárkrók.
Fram kom í fréttum fyrr í vetur að flugfélagið Ernir þyrfti tæpar 20 milljónir á ári til að halda flugi áfram á Krókinn og fé til þess verkefnis hafi fengist við þriðju umræðu fjárlaga á Alþingi en samkvæmt heimildum Feykis hefur þessi tala breyst, hækkað nokkuð, og setur því málið í erfiðari farveg sem ekki er enn búið að leysa. Þangað til verður ekki flogið á Krókinn.