Síðasta löndunin úr Örvari
Örvar SK-2 kom til hafnar í gærkvöldi eftir um mánaðarlangan veiðitúr og í morgun hófst síðasta löndun úr honum, það er í Sauðárkrókshöfn, en togarinn sem er í eigu FISK hefur verið seldur til Rússlands.
Í lok desember á síðasta ári bárust fréttir þess efnis að viðunandi kauptilboð hefði borist í togarann og skipið yrði afhent nýjum eigendum í febrúar.
30 manns hefur verið sagt upp vegna þessa og er uppsagnarfrestur frá einum og upp í sex mánuði.
Stefna FISK er að draga úr vægi frystingar og vinnslu úti á sjó, en efla í staðinn vinnslu í landi, sem býður upp á fjölbreyttari framleiðslu og betri nýtingu alls hráefnis. Undirbúningur að þessari breytingu er þegar hafinn m.a. með byggingu þurrkverksmiðju á Sauðárkróki.
Frétt um málið frá því 27. desember sl. er að finna hér.