Síðasta mót Skagfirsku mótaraðarinnar
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
30.03.2014
kl. 11.25
Fjórða og síðasta mót Skagfirsku mótaraðarinnar verður miðvikudaginn 2. apríl. Keppt verður í barnaflokki – T7, unglingaflokki – T3, ungmennaflokkur – V2, öðrum flokki fullorðinna – V2 og fyrsta flokki (opin flokkur) T2 og skeið. Keppni mun hefjast klukkan 18:30 á barnaflokki.
Skráning er fyrir kl. 24:00 í dag, sunnudaginn 30. mars í netfangið fritz@mi.is. Skráningargjald er 1500 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn og unglinga. Aðgangseyrir 1000 kr.
Allar nánari upplýsingar á heimasíðum hestamannafélaganna í Skagafirði, sem og heimasíðu reiðhallarinar www.svadastadir.is.