Sigmundur Davíð með Hólaræðu
Hólahátíð hefst föstudaginn 12 ágúst með setningu í Auðunnarstofu. Hátíðin mun standa fram á sunnudag en líkt og undan farin ár verður margt til skemmtunar og fróðleiks og ættu allir aldurshópar að finna eitthvað við sitt hæfi. Hólaræðan mun að þessu sinni verða flutt af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins.
Dagskrá Hólahátíðar 2011
Föstudagur 12. ágúst
Kl. 20:30 Athöfn í Auðunarstofu: Krossferli að fylgja þínum. Próf. Einar Sigurbjörnsson flytur erindi um táknmál krossins. Opnuð sýning á krossum Jóns Geirs Ágústssonar.
Laugardagur 13.ágúst
Kl.07:00 Brottför með rútu í pílagrímagöngur dagsins. Pílagrímagöngur úr tveimur áttum. Annars vegar um Heljardalsheiði frá Atlastöðum í Svarfaðardal kl. 9:00
Hins vegar frá Flugumýri að Hvammsdal svokallaða Biskupaleið. Mæting við Flugumýrarkirkju kl. 7:30 (Skráning malfridur@holar.is )
Kl. 09:00 Morgunsöngur í Dómkirkjunni
Kl. 10:00 Ratleikur fyrir alla fjölskylduna
Kl. 12:30 Gengið í Gvendarskál að altari Guðmundar góða þar sem sungin verður stutt pílagrímamessa.
Kl. 13:30 Ungmennafélagið Hjalti stendur fyrir hlaupi frá Hólastað í Gvendarskál.
Kl. 16:30 Athöfn við Sögusetur íslenska hestsins – póstlest ríður heim á staðinn
Kl. 18:00 Tekið á móti pílagrímum við Dómkirkjuna – kvöldsöngur
Kl. 19:30 Grillveisla
Kl. 21:00 Varðeldur og kvöldvaka á íþróttavellinum
Sunnudagur 15. ágúst
Kl. 09:00 Morgunsöngur í Dómkirkjunni
Kl. 11:00 Samkoma í Auðunarstofu
Kl. 14:00 Hátíðarmessa í Hóladómkirkju. sr. Dalla Þórðardóttir prófastur prédikar, vígslubiskup, biskup Íslands og fl. þjóna fyrir altari. Kammerkór Norðurlands syngur undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar. Organisti Sigrún Magna Þórsteinsdóttir
Kl. 15:00 Kirkjukaffi í Hólaskóla
Kl. 16:30 Hátíðarsamkoma í kirkjunni. Hólaræðan: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Skáld Hólahátíðar, Einar Már Guðmundsson. Tónlist: Kammerkór Norðurlands. Stjórnandi Guðmundur Óli Guðmundsson.