Sigur á móti Völsung

Stelpurnar okkar í 4. flokki Tindastóls gerðu sér lítið fyrir  í gærkvöld og sigruðu lið Völsungs í síðari umferð þeirra riðils í Íslandsmótinu. Stelpurnar standa nú þegar þrír leikir eru eftir með pálmann í höndunum efstar í sínum riðli. Leikar fóru fjögur þrjú en stelpurnar hleyptu að sögn Gaua þjálfara óþarflega mikilli spennu í leikinn þegar Völsungsstelpur skoruðu tvö mörg á síðustu fimm mínútum leiksins.

Mörk Tindastóls skorðuðu þær Guðný Björnsdóttir og Kolbrún Hjaltadóttir auk þess sem þær grænklæddu laumuðu einu í eigið mark.

Stelpurnar eru nú í keppnisferð og eiga á morgun föstudag leik við Hött sem þær sigruðu auðveldlega á heimavelli nú í vor. Þá mæta þær Fjarðarbyggð á Eskifirði á laugardag en fyrri leik liðanna leik með öruggum sigri okkar stúlkna. Þær enda síðan riðilinn með því að mæta á KA á Akureyri á mánudag.

Vinni stelpurnar leikina fyrir austan eru þær nokkuð öruggar með sigur í riðlinum og munu þá taka þátt í úrslitakeppni Íslandsmótsins í byrjun september en tvö efstu lið út hverjum riðli fara í úrslitakeppnina.

Það er því um að gera að senda stelpunum okkar ungu og efnilegu baráttustrauma því framundan er strembin en spennandi helgi.

Fleiri fréttir