Sigur kemur Tindastól/Hvöt í 7. sæti

Tindastóll/Hvöt sigraði nú á laugardag lið Fjarðarbyggðar með tveimur mörkum gegn einu í miklum baráttuleik sem fram fór á Eskifjarðarvelli í 13. umferð 2. deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu karla.

Það voru þeir Gísli Eyland Sveinsson, markamaður, og Milan Markovic sem skoruðu mörkin fyrir Tindastól/Hvöt.

Á húna er skrifað um leikinn; „Leikurinn byrjaði af krafti og greinilegt að bæði lið ætluðu sér sigur í leiknum. Heimamenn voru meira með boltann fyrstu mínúturnar en liðsmenn Tindastóls/Hvatar vörðust vel. Það var svo á 21. mínútu leiksins að Tindastóll/Hvöt fékk dæmda vítaspyrnu sem markmaðurinn Gísli Eyland Sveinsson skoraði úr af talsverðu öryggi. Staðan var 1-0 í hálfleik.

Seinni hálfleikur var svipaður og sá fyrri, heimamenn í Fjarðarbyggð voru meira með boltann en liðsmenn Tindastóls/Hvatar vörðust. Á 66. mínútu æstust leikar heldur til of mikið sem höfðu þær afleiðingar að dómari leiksins vísað af velli þeim Sigurjóni Egilssyni, leikmanni Fjarðarbyggðar og Aðalsteini Arnarsyni, leikmanni Tindastóls/Hvatar.

Tveimur mínútum seinna náði Tindastóll/Hvöt tveggja marka forystu þegar Milan Markovic skoraði glæsilegt mark þegar hann stökk manna hæst inn í vítateig Fjarðarbyggðar og skoraði örugglega. Heimamenn náðu svo að minnka muninn á 74. mínútu leiksins urðu lokatökur 1-2, Tindastóli/Hvöt í vil.

Með sigrinum komst Tindastóll/Hvöt upp í 7. sæti deildarinnar og er nú með 20 stig, eins og lið Dalvíkur og Aftureldingar, en verri markatölu.

Næsti leikur liðsins verður næstkomandi miðvikudag gegn Aftureldingu og fer leikurinn fram á Sauðárkróksvelli.“

Fleiri fréttir