Sigur Tindastóls gegn Fjölni - FeykirTV
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
13.02.2015
kl. 18.21
Tindastóll tók á móti Fjölni úr Grafarvogi á Sauðárkróki í gær og sigraði gestina í þægilegum leik, eins og kom fram í umfjöllun á Feyki.is í gærkvöldi. FeykirTV var í Síkinu og ræddi við leikmenn Tindastóls , þá Viðar Ágústsson og Ingva Rafn Ingvarsson, að leikslokum.
Stólarnir náðu góðu forskoti strax í byrjun og sáu gestirnir ekki til sólar í fyrri hálfleik og áttu í raun aldrei möguleika í síðari hálfleik. Lokatölur voru 103-83.
http://youtu.be/DyDymbPOvts