Sigurður Bragi og Ísak sigruðu Skagafjarðarrall 2011
Skagafjarðarrall 2011 fór fram í sól og bongóblíðu sl. laugardaginn en sigurvegarar rallsins að þessu sinni voru þeir Sigurður Bragi Guðmundsson og Ísak Guðjónsson á Lancer Evo 7 þeir keppa í flokki X og skilar sigur þeirra þeim því ekki stigum í Íslandsmeistaramótinu. Þeir fengu tímann 01:04:22. Í öðru sæti voru þeir Hilmar Bragi Þráinsson og Davíð Jón Ríkharðsson á MMC Lancer Evo 7 á tímanum 01:06:24 þeir sigruðu síðan N flokkinn og leiða nú íslandsmeistaramótið.
í þriðja sæti yfir heildina og annað sætið í flokki N urðu Valdimar Jón Sveinsson og Heimir Snær Jónsson á Subaru Imprezu á tímanum 01:08:00
í 4 sæti yfir heildina og 3 sæti í flokki N urðu Einar Sigurðsson og Símon Grétat Rúnarsson á Audi Quattro S2 á tímanum 01:08:05.
í 5 sæti yfir heildina voru Hlöðver Baldursson og Baldur Arnar Hlöðversson á Toyotu corollu en þeir kepptu í eindrifsflokki en voru einir skráðir í hann þannig að hann taldi ekki til stiga í þessari keppni á tímanum 01:10:27
í 6 sæti yfir heildina og sigurvegarar í Non Turbo flokki voru Þorsteinn Páll Sverrisson og Ragnar Sverrisson á Subaru imprezu á tímanum 01:11:40.
í 7 sæti yfir heildina var Kristinn Sveinsson og Brimrún Björgúlfsdóttir á Jeep Grand Cherokeeen þau kepptu í flokki X á tímanum 01:11:51 (X flokkur taldi ekki til stiga)
í 8 sæti yfir heildina og sigurvegarar í jeppaflokki urðu Guðmundur Orri McKinstry og Þórður Andri Mc Kinstry á Tomcat á tímanum 01:11:53
í 9 sæti yfir heildina og í öðru sæti í Non turbo flokki voru Baldur Haraldsson og Guðrún Hildur Magnúsdóttir á Subaru Imprezu á tímanum 01:14:06
í 10 sæti yfir heildina og öðru sæti í jeppa flokki voru Sighvatur Sigurðsson og Úlfar Eysteinsson á MMC Pajero Sport á tímanum 01:15:04
í 11 sæti og 3 sæti í jeppaflokki urðu Þórður G Ingvason og Björn Ingi Björnsson á Toypta Hilux á tímanum 01:22:27
Áhafnir sem duttu úr keppni:
Jón B Hrólfsson og Halldór Gunnarsson á Subaru Imprezu þar fór vélin. (þeir eru íslandsmeistara 2010) Þeir kepptu í flokki N
Jón Örn Ingileifsson og Sigurjón Þór Þrastarson á Mitsubishi Lancer Evo 6 þar fór spyrna og fl eftir svaklegt jump á Mælifellsdal en Jón Örn var sigraði í kosningu um mann keppninnar.
Kepptu í flokki N
Bragi Þórðarson og Nagnús Þórðarson á Subaru Imprezu þar fór vélin. Þeir kepptu í Non Turbo flokki.
Texti; Sigurlaug Dóra Ingimarsdóttir,
Mynd Árni Gunnarsson