Sigurjón áfram formaður frjálsíþróttadeildar

Aðalfundur Frjálsíþróttadeildar Tindastóls fór fram í lok febrúar. Á fundinum kom fram að íþróttastarfið hefði gengið vel á síðasta ári og var rekstur deildarinnar jákvæður, þrátt fyrir aukinn kostnað. Þrír voru endurkjörnir í stjórn deildarinnar.

Sigurjón Leifsson var endurkjörinn formaður, eins og Guðrún Ottósdóttir gjaldkeri og Hafdís Ólafsdóttir meðstjórnandi. Eiður Baldursson gekk úr stjórn og voru honum þökkuð góð störf fyrir deildina. Margrét Arnardóttir kemur inn sem tengiliður stjórnar við foreldra yngri barna.

Fleiri fréttir