Sirkusheimsókn - Sirkus FLIK FLAK

Í sumar kemur til landsins barna og unglinga sirkusinn Cirkus Flik Flak frá Danmörku. Þessi sirkus hefur komið hingað áður við góðar undirtektir. Var það árið 2003 og 2007 sýndi hann þá meðal annars fyrir börn og fjölskyldur í Hafnarfirði, Vestmannaeyjum, Reykjanesbæ og Mosfellsbæ. Sirkusinn kemur  hann 30.júní og verður hér til 14.júlí og á þeim tíma verður hann með sýningar á stórhöfuðborgarsvæðinu og á norðurlandi. Hópurinn telur um 50 börn, unglinga og þjálfara.

Sirkusinn mun heimsækja Sauðárkrók   6. – 8. júlí og mun vera með sýningu í Íþróttahúsinu nk. sunnudag, þann  7. júlí kl. 18:00.

Fleiri fréttir